Með tilkomu samnings milli Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum og Vegagerðarinnar annars vegar og Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum og Kynnisferða og SBK hins vegar opnast nýir möguleikar í samgöngumálum Suðurnesjamanna og gesta þeirra.

Reykjanes Express hefur stórbætt þjónustu við íbúa sem nýta sér almenningssamgöngur á milli Reykjaness og Reykjavíkur.

Brottfararstaðir verða eins og áður frá SBK og Ásbrú en að auki býðst íbúum Reykjanes að nýta sér Flugrútu Kynnisferða sem fer frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE).

Flugrútan mun stoppa á stoppistöðvum við Reykjanesbraut í ákveðnum ferðum. Stoppistöðvarnar eru við gatnamót á Grænási, við Grindavíkur- og Vogaafleggjara.



mánuðir
27.400 kr. á mánuði 
mánuðir
21.600 kr. á mánuði

mánuðir
18.000 kr. á mánuði 
mánuðir
16.200 kr. á mánuði

Handhöfum kreditkorta er boðið upp á raðgreiðslur. Skila þarf inn passamynd (með ljósum bakgrunni) á rafrænu formi fyrir afsláttar- og námsmannakort.