Stórlega bætt þjónusta við íbúa Suðurnesja

Frá því í janúar 2008 hefur verið unnið að því að Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum taki yfir einkaleyfi til almenningssamgangna á Reykjanesi. Það er í takt við þá stefnu Samgönguráðuneytisins að færa almenningssamgöngur í hendur sveitarfélaga á landinu.

Nú liggur fyrir samningur milli Vegagerðarinnar og SSS um yfirtöku einkaleyfis á Reykjanesi. Það felur í sér að SSS yfirtekur rekstur og/eða semur við aðila um sérleyfisakstur á svæðinu, með akstri almenningssamgangna milli byggðarlaga innan og utan svæðis, flugrútuna,  skólaakstur og akstur með fatlaða. Þetta hefur í för með sér mikla möguleika sveitarfélaganna á samnýtingu samgangna sem frekar koma í ljós á næstu mánuðum. Það felst m.a. í nýtingu skólaaksturs samhliða almennri áætlun, nýtingu á „flugrútunni“ til fjölgunar ferða í áætlun frá Reykjanesi til höfuðborgarsvæðisins.

SSS hefur framlengt samning um sérleyfið við Kynnisferðir samkvæmt heimild með því að gera þjónustusamning við Kynnisferðir til eins árs, með framlengingarmöguleika um annað ár, en Kynnisferðir eru í nánu samstarfi við SBK um framkvæmd samningsins.

Þau góðu tengsl sem skapast hafa við samstarfsfyrirtækin, Kynnisferðir og SBK haf leitt til þess að með nýskipan þessara mála verða íbúar Reykjanes strax varir við miklar og jákvæðar breytingar með fjölgun ferða og lækkun fargjalda á áætlanaleið Reykjanes Express frá byggðarkjörnunum á Reykjanesi til höfuðborgarsvæðisins.

Frá og með 1. janúar 2009 fjölgar ferðum frá Reykjanesi til höfuðborgarinnar um 28 á viku, þar af 8 um helgar. Í boði verða afsláttakjör sem koma mjög til móts við þá sem mest nota þjónustu Reykjanes Express þar sem hægt er að finna fargjald allt niðurundir 300 krónur fyrir einstaka ferð.

 Reykjanes Express verða eins og áður með tengingum frá Sandgerði, Garði, Grindavík og Vogum. Upphafsstaður og helstu viðkomustaðir eru sem áður:  SBK í Reykjanesbæ, Grænás, Vallarheiði, mislæg gatnamót v/Tjarnarhverfi, Grindavíkurveg og Vogaafleggjara, Fjörukránna í Hafnarfirði, Aktu-taktu í Garðabæ, BSÍ og í morgunferðum við Háskólann í Reykjavík, Kennaraháskóla Íslands, Menntaskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands.